Stal ilmvötnum fyrir 45 þúsund krónur

Ilmvötn af öllum stærðum og gerðum.
Ilmvötn af öllum stærðum og gerðum. Europol

Lögreglan á Suðurnesjum handtók í vikunni karlmann sem grunaður var um að hafa látið greipar sópa í verslunum í umdæminu.

Í ljós kom að hann hafði í fórum sínum ilmvötn að andvirði rúmlega 45 þúsunda króna og annan varning að andvirði ríflega 14 þúsunda króna. Maðurinn var færður til skýrslutöku á lögreglustöð.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert