Stungu lögreglu af

Verspur eru ekki gerðar fyrir þrjá.
Verspur eru ekki gerðar fyrir þrjá. mbl.is/Sigurgeir Sigurðsson

Þrír drengir sem lögreglan á Suðurnesjum sá saman á vespu nýverið stungu lögreglu af og þegar gerð var tilraun til að stöðva för þeirra með því að blikka aðalljósum á lögreglubifreiðinni sinntu þeir því ekki heldur óku gegn einstefnu. Sást til þeirra þar sem þeir hentu sér af vespunni, létu hana inn í garð og hlupu í burtu.

Skömmu síðar hittu lögreglumenn tvo þeirra á gangi en þeir vildu ekki kannast við neitt. Vespan var því haldlögð og komið fyrir á lögreglustöð.

Þegar líða tók á daginn kom einn piltanna og vildi sækja hjólið. Honum var tilkynnt að hann fengi það ekki afhent nema koma með forráðamann með sér, sem hann gerði skömmu síðar. Málið var tilkynnt til barnaverndar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert