Meirihluti andvígur innflutningi

Viðskiptavinir bíða við kjötborðið. 55% landsmanna eru andvíg innflutningi á …
Viðskiptavinir bíða við kjötborðið. 55% landsmanna eru andvíg innflutningi á fersku kjöti frá EES-löndum. mbl.is/Ásdís Ásgeirsdóttir

Rúmlega helmingur landsmanna (55%) er andvígur því að innflutningur á fersku kjöti frá löndum af Evrópska efnahagssvæðinu (EES) verði heimilaður en 27% eru því fylgjandi.

Þetta kemur fram í nýrri könnun MMR sem framkvæmd var dagana 11.-14. mars.

Alls kváðust 38% aðspurðra mjög andvíg því að slíkur innflutningur verði heimilaður, 18% voru frekar andvíg, 17% hvorki fylgjandi né andvíg, 15% frekar fylgjandi og 12% mjög fylgjandi, að því er segir í tilkynningu.

Karlar (37%) reyndust líklegri en konur (17%) til að segjast fylgjandi því að innflutningur á fersku kjöti frá löndum af Evrópska efnahagssvæðinu verði heimilaður en 63% kvenna kváðust andvíg slíkum innflutningi, samanborið við 48% karla.

Andstaða gegn innflutningi jókst með auknum aldri. 70% svarenda á aldrinum 68 ára og eldri kváðust frekar eða mjög andvíg því að innflutningur verði heimilaður, samanborið við 52% þeirra 18-29 ára og 49% þeirra 30-49 ára.

Stuðningur við innflutning reyndist mestur á meðal svarenda á aldrinum 30-49 ára (34%) en minnstur hjá þeim 18-29 ára (20%).

Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, lét Gallup framkvæma svipaða könnun nýverið og er niðurstaðan svipuð - meirihluti landsmanna er andvígur innflutningi á fersku kjöti.

Fleiri andvígir á landsbyggðinni 

Þá reyndust svarendur búsettir á landsbyggðinni líklegri til að segjast andvígir innflutningi á fersku kjöti (69%) heldur en íbúar höfuðborgarsvæðisins (47%) en yfir helmingur landsbyggðarbúa kvaðst mjög andvígur innflutningi (55%).

Svarendur af höfuðborgarsvæðinu reyndust líklegri til að segjast fylgjandi því að innflutningur verði heimilaður (33%) heldur en þeir af landsbyggðinni (17%).

Stuðningsfólk Viðreisnar (68%), Samfylkingar (51%) og Pírata (46%) reyndist líklegast til að segjast fylgjandi því að innflutningur á fersku kjöti af EES-svæðinu verði heimilaður. Stuðningsfólk Framsóknar (82%), Miðflokks (80%) og Vinstri-grænna (78%) reyndist hins vegar líklegast til að segjast andvíg því að innflutningur verði heimilaður.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert