Píratar og Miðflokkur bæta við sig

Fylgi flokka.
Fylgi flokka. Ljósmynd/MMR

Fylgi Sjálfstæðisflokksins hefur minnkaði um tæp tvö prósentustig frá síðustu fylgismælingu MMR og mælist nú 21,7%. Píratar mældust með 15,0% fylgi, sem er tæplega einu og hálfu prósentustigi meira en flokkurinn mældist með í síðustu könnun.

Þetta er niðurstaða könnunar MMR sem framkvæmd var dagana 4.-9. apríl 2019. Heildarfjöldi svarenda voru 926 manns, 18 ára og eldri.

Fylgi Framsóknarflokksins minnkaði um tæplega tvö og hálft prósentustig en fylgi Miðflokksins hækkaði um rúm tvö prósentustig frá síðustu mælingu.

Stuðningur við ríkisstjórnina jókst hins vegar um um tæp fimm prósentustig og mældist nú 46,5% en var 41,8% í síðustu mælingu.

Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 13,9% og mældist 13,8% í síðustu könnun.
Fylgi Vinstri grænna mældist nú 10,4% og mældist 11,4% í síðustu könnun.
Fylgi Miðflokksins mældist nú 10,2% og mældist 8,0% í síðustu könnun.
Fylgi Viðreisnar mældist nú 9,0% og mældist 9,4% í síðustu könnun.
Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 8,7% og mældist 11,1% í síðustu könnun.
Fylgi Flokks fólksins mældist nú 5,4% og mældist 4,7% í síðustu könnun.
Fylgi Sósíalistaflokks Íslands mældist nú 4,5% og mældist 2,5% í síðustu könnun.
Fylgi annarra flokka mældist 1,2% samanlagt.

Vik­mörk á fylgi við flokka geta verið allt að 3,1%.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert