Alvarlega slasaður eftir bílveltu við Húnaver

Óskað hefur verið eftir aðstoð frá þyrlu Landhelgisgæslunnar vegna bílveltu …
Óskað hefur verið eftir aðstoð frá þyrlu Landhelgisgæslunnar vegna bílveltu á þjóðveginum Langadal, skammt frá Húnaveri. mbl.is/Kristinn Magnússon

Bílvelta varð á þjóðveginum sunnan við Æsustaði í Langadal, skammt vestan við Húnaver, á tíunda tímanum í kvöld. Óskað hefur verið eftir aðstoð Landhelgisgæslunnar sem er á leiðinni á slysstað. Búið er að loka þjóðveginum og er hjáleið um Þverárfjallsveg. 

Samkvæmt upplýsingum frá stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst ósk um aðstoð frá lögreglunni á Norðurlandi vestra klukkan 21:41 vegna alvarlegs umferðarslyss. Þyrlan er lögð af stað og er væntanleg á slysstað rétt fyrir klukkan 23. 

Þá er björgunarlið frá lögreglu og sjúkraliði á vettvangi, auk björgunarsveitarmanna sem sjá um lokanir á þjóðveginum og beina umferð um Þverárfjallsveg. 

Uppfært klukkan 23:13: 

Þyrla Landhelgisgæslunnar er komin á vettvang og mun hún flytja ökumann bílsins, sem er alvarlega slasaður, á Landspítalann í Fossvogi. 

Ingvar Sigurðsson, slökkviliðsstjóri Brunavarna Austur-Húnavatnssýslu, segir í samtali við mbl.is að um alvarlegt slys sé að ræða og því gætu aðgerðir á vettvangi staðið lengi yfir, með tilliti til rannsóknarhagsmuna. „Það er enginn asi á að loka vettvangi,“ segir Ingvar, og bendir á að hjáleið sé um Sauðárkrók. 

Þá segir hann aðstæður á slysstað með ágætum, 7-10 metrar á sekúndu en frekar bjart og háskýjað og um 10 stigi hiti.

Uppfært klukkan 00:02: 

Opnað hefur verið umferð á ný um þjóðveginn um Vatnsskarð við Húnaver. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert