Verkefni í landgræðslu taka eina öld

Til greina kemur að stöðva að fé sé rekið til …
Til greina kemur að stöðva að fé sé rekið til sumarbeitar á vissum afréttarsvæðum, segir Árni Bragason, landgræðslustjóri. mbl.is/Sigurður Bogi

Huga þarf að uppgræðslu á einni milljón hektara lands í verkefnum sem taka eina öld í framkvæmd.

Þetta segir Árni Bragason landgræðslustjóri sem telur koma til greina að stöðva upprekstur á ákveðnum afréttum. Slíkt hafi þegar gerst í nokkrum mæli með gæðastýringu í sauðfjárrækt. Lítið þurfi þó til svo jafnvægið í náttúrunni raskist og gróðureyðing fari af stað.

Í Morgunblaðinu í dag telur Árni ennfremur að geyma skuli ræktarland framtíðar áfram sem mýrlendi í stað þess að ræsa það fram. Þá megi gjarnan moka ofan í skurði samsíða vegum því þeir skapi slysahættu.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert