Ísland mun leggja sitt af mörkum

Bjarni Benediktsson og Frans páfi takast í hendur.
Bjarni Benediktsson og Frans páfi takast í hendur. Ljósmynd/Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, sagði Ísland ætla að leggja sitt af mörkum til að mæta loftslagsvandanum, á fundi fjármálaráðherra sem var haldinn í Vatíkaninu í dag.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu.

Vísindaakademía Páfagarðs boðaði til fundarins, sem er liður í starfi nýstofnaðs alþjóðlegs vettvangs ráðherranna, CAPE.

Vettvanginum er ætlað að hvetja til aðgerða í loftslagsmálum í krafti regluverks og ákvarðana á sviði ríkisfjármála og fjármálamarkaða. Bjarni sagði Ísland hafa verið leiðandi í orkuskiptum með því að nýta hreinar auðlindir til húshitunar og raforkuframleiðslu. Ætlunin væri að taka enn frekari skref, með orkuskiptum í samgöngum og uppbyggingu innviða fyrir rafbíla, enda hefði ríkisstjórnin sett sér markmið um kolefnahlutleysi árið 2040.

Jafnframt gæti framlag Íslands falið í sér útflutning á þekkingu á nýtingu fallorku og jarðhita, sem og áframhaldandi rannsóknir og þróun, meðal annars á niðurdælingu koltvísýrings, að því er segir í tilkynningunni.

Ráðherrarnir ræddu leiðir til að draga úr losun, bæði tæknilega og með skattalegum hvötum, sem og aðgerðir til að binda kolefni. Á fundinum kom fram að með uppgræðslu og náttúrulegum aðferðum til bindingar mætti draga úr kolefni í andrúmsloftinu um 30% fram til ársins 2030.

Til umræðu var einnig útgáfa grænna skuldabréfa og hvernig breyta mætti fjárfestingarstefnu opinberra sjóða, með áherslu á græn verkefni.

Undraðist aðgerðaleysi á heimsvísu

Frans páfi ávarpaði fundinn en í máli hans kom fram að aðgerðaleysi á heimsvísu vekti furðu. Fyrir einungis tveimur vikum hefði koltvísýringur í andrúmslofti mælst meiri en nokkru sinni fyrr, eða 415 ppm og afleiðingar loftslagsbreytinga væru ljósar um heim allan.

„Við sjáum hitabylgjur, þurrka, skógarelda, flóð og aðrar veðurfræðilegar hamfarir, hækkandi yfirborð sjávar, sjúkdóma og önnur vandamál sem eru alvarlegur fyrirboði um enn verri hluti ef við bregðumst ekki við og gerum það af alvöru,“ sagði páfi.

Í lok ræðu sinnar sagðist Frans páfi vona að ráðherrarnir nýttu umboð sitt til að komast að samkomulagi um áætlun sem byggðist á nýjustu upplýsingum loftslagsvísindanna, hreinni orku og ekki síst siðfræði mannlegrar virðingar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert