Starfsáætlun þingsins felld úr gildi

Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis.
Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis. mbl.is/Hari

Forseti vill nú í upphafi þingfundar greina frá því að á fundi forsætisnefndar í gær var samþykkt að starfsáætlun 149. löggjafarþings verði tekin úr sambandi að afloknum eldhúsdegi á morgun. Samkvæmt starfsáætluninni var horft til þess að þingstörfum gæti lokið um miðja næstu viku en nú virðist ljóst að svo verði ekki.

Þetta sagði Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis, við upphaf þingfundar í morgun. Hann sagði að fundahald verði boðað dag frá degi en þó reynt að hafa þann fyrirsjáanleika í því sem mögulegt er. Þannig liggi fyrir að þingfundur verður næsta föstudag.

Hann benti á að 32 mál væru á dagskrá þingsins í dag en síðustu daga hefur umræða um þriðja orkupakkann tekið yfir öll störf á þinginu. 

Umræður um það mál hafa nú staðið í yfir 100 klukkustundir og þar af hefur einn og sami flokkurinn talað í yfir 90 klukkustundir í því máli,“ sagði Steingrímur en þingmenn Miðflokksins hafa einokað ræðupúltið.

Steingrímur sagði að æskilegt væri að þeirri umræðu færi að ljúka til að hægt væri að hefja umræðu um önnur mál og til að koma í veg fyrir frekari röskun á starfi þingsins.

Forseti skorar því enn og aftur á þingmenn Miðflokksins að hugleiða hvort 90 klukkustundir rúmar og þótt fáeinar væru í viðbót dugi ekki fyrir þá til að koma afstöðu sinni á framfæri þannig að þingið geti senn tekið afstöðu til málsins á þann hátt sem leikreglur okkar bjóða og endanlegt gildi hefur, þ.e. að greiða um málið atkvæði.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert