Tindur nefndur eftir Guðfinnu

Erlendir samstarfsfélagar Guðfinnu eiga erfitt með nafn hennar og kalla …
Erlendir samstarfsfélagar Guðfinnu eiga erfitt með nafn hennar og kalla hana gjarnan Tolly. Ljósmynd/HÍ

Tindur á Suðurskautslandinu var á dögunum nefndur í höfuðið á Guðfinnu Th. Aðalgeirsdóttur, prófessor í jöklafræði við Háskóla Íslands. Guðfinna stundar rannsóknir á jöklum og hefur verið víðförul í verkefnum sínum. 

Erlendir samstarfsfélagar Guðfinnu eiga erfitt með nafn hennar og kalla hana gjarnan Tolly og hlaut tindurinn heitið Tolly Nunatak.

Greint er frá sögunni á bakvið nafnið á vef Háskóla Íslands, en haustið 2004 var Guðfinna stödd á Falklandseyjum að bíða þess að veðrið yrði nógu gott til að fljúga yfir á Suðurskautslandið til að stunda þar rannsóknir og mælingar. Í undirbúningi fyrir ferðina varð Guðfinna fyrir því óláni eða slíta hásin og komst að lokum ekki með í ferðina.

Tindurinn Tolly Nunatak er á milli hærri fjalla í Flowers …
Tindurinn Tolly Nunatak er á milli hærri fjalla í Flowers Hills í Ellsworth-fjöllum á Suðurskautslandinu. Kort/HÍ

Félögum Guðfinnu þótti leiðinlegt að hún hafi ekki komist með og tóku upp á því að nefna einn tindinn sem mældur var með GPS-tæki og merktur inn á kort Tolly's heel eða Hæll Tollýjar.

„Ég komst því aldrei sjálf á Tolly Nunatak en félagar mínir nefndu einn viðmiðunarpunktinn fyrir mælingarnar „Tolly's Heel“  til að minnast hásinarinnar. Þeir vildu þannig hafa mig með í anda þótt ég hefði sjálf verið send heim frá Falklandseyjum í sjúkraflugi með ökklann í gifsi. Það var hrikalega erfitt að horfa á eftir vinnufélögum mínum fara á Suðurskautslandið og komast ekki sjálf,“ segir Guðfinna, sem komst þó sjálf til Suðurskautslandið bæði veturinn 2011 til 2012 og vetur 2012 til 2013.

Það var svo vísindamaðurinn Andy Smith, sem stjórnaði verkefninu um árið á Suðurskautslandinu, sem skrifaði bréf til nafnanefndar Suðurskautslandsins í Bretlandi og fékk það staðfest.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert