Leggja 2,4 kílómetra af hjólastígum

Ráðist verður í gerð hjólastíga í Reykjavík fyrir rúman hálfan …
Ráðist verður í gerð hjólastíga í Reykjavík fyrir rúman hálfan milljarð í sumar. mbl.is/Kristinn Magnússon

Reykjavíkurborg áformar að bæta 2,4 kílómetrum við hjólastígakerfi borgarinnar í ár. Hluti stíganna er samstarfsverkefni með Vegagerðinni sem greiðir hluta kostnaðar, sem alls er áætlaður 530 milljónir króna. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá borginni.

Borgarráð hefur heimilað umhverfis- og skipulagssviði að ljúka hönnun og bjóða út framkvæmdir vegna verkefna hjólreiðaáætlunar 2019. Kostnaður við verkefnin er sem áður segir áætlaður 530 milljónir króna og greiðir Reykjavíkurborg þar af 450 milljónir en Vegagerðin 80 milljónir. Hjólastígarnir sem um ræðir verða samtals 2,4 kílómetrar að lengd og aðgreindir frá umferð gangandi og akandi þar sem því verður við komið.

„Allar rannsóknir sýna að fólk hjólar meira eftir því sem stígakerfi fyrir hjólreiðar batnar. Þannig hefur umferð hjólandi farið stigvaxandi í Reykjavík eftir því sem aðstaða fyrir hjólreiðafólk batnar,“ segir í tilkynningu frá borginni, en þar er einnig fjallað um að mikil aukning hafi orðið í notkun á rafmagnshjólum.

Í tilkynningu borgarinnar segir að talningar á samgönguhjólreiðum við Nauthólsvík sýni að um 1.800 hjól hafi farið þar um á hverjum degi síðustu daga.

„Yfir 36.000 ferðir voru taldar þar í maí sem er mesta umferð hjóla í einn mánuð sem mælst hefur í Reykjavík. Mesta umferð sem áður hefur verið talin þar var 30 þúsund ferðir í ágúst 2018. Með samgönguhjólreiðum er helgarumferð ekki talin með en hún gæti flokkast undir frístundahjólreiðar,“ segir í tilkynningunni.

Eftirfarandi verkefni verða unnin:

  • Eiðsgrandi frá bæjarmörkum Seltjarnarness að dælustöð við Keilugranda. Nýr hjólastígur aðgreindur frá gangandi umferð.
  • Bústaðavegur milli Háaleitisbrautar og brúar yfir Kringlumýrarbraut. Nýr hjólastígur norðan Háaleitisbrautar aðgreindur frá gangandi umferð.
  • Elliðaárdalur. Stekkjarbakki að stíg við Fagrahvamm. Nýr hjólastígur aðgreindur frá gangandi umferð.
  • Elliðaárdalur. Lagfæringar á stíg milli Reykjanesbrautar og Höfðabakka.
  • Geirsgata við Miðbakka milli Lækjargötu að Pósthússtræti. Nýr hjólastígur aðgreindur frá gangandi umferð.
  • Víðidalur. Nýr göngu- og hjólastígur stígur frá Vallarási að stígakerfi Elliðaárdals við Klapparás.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert