„Vildum óska að hún hefði aldrei komið“

Grímseyingar eru ekki hrifnir af „Orbis et Globus“, kennileiti fyrir …
Grímseyingar eru ekki hrifnir af „Orbis et Globus“, kennileiti fyrir hinn síbreytilega heimskautsbaug. mbl.is/Sigurður Ægisson

Listaverkið „Orbis et Globus“, átta tonna steinkúla sem hefur verið kennileiti heimskautsbaugsins á Grímsey síðan haustið 2017 hefur verið milli tannanna á fólki í bænum frá því hún var færð á eyjuna.

Þetta staðfestir Guðrún Inga Hannesdóttir sem situr í hverfisráði Grímseyjar en mikil umræða skapaðist um kúluna, sem var vinningstillaga Kristins E. Hrafnssonar og Studio Granda í samkeppni um nýtt kennileiti fyrir heimskautsbauginn, á íbúafundi sem haldinn var snemma í mánuðinum.

Í fundargerð íbúafundarins kemur fram að ferðamönnum finnist þeir sviknir að fara ekki að kúlunni í leiðsögnum og að sumir heimamenn vilja færa hana nær bænum.

Þetta staðfestir Guðrún í Morgunblaðinu í dag en hún segir að kúlan hafi lítið jákvætt gert fyrir íbúa Grímseyjar. „Það sem kúlan hefur aðallega gert er að hún dregur alla ferðamenn úr bænum. Það er þriggja tíma gangur frá bryggjunni, fram og til baka, sem er mjög hæpið þegar fólk er að koma með flugi og hefur aðeins einn og hálfan tíma,“ segir hún. „Áður var heimskautsmerkið bara rétt hjá flugvellinum og allir voru alsælir að ganga þar yfir.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert