Sundabraut setur skipafélög í óvissu

Sundahöfn. Lagning Sundabrautar mun hafa mikil áhrif á starfsemi skipafélaganna …
Sundahöfn. Lagning Sundabrautar mun hafa mikil áhrif á starfsemi skipafélaganna Eimskips og Samskipa, óháð því hvaða útfærsla verður fyrir valinu mbl.is/Eggert Jóhannesson

Óvissa um hvort, hvenær eða hvar Sundabraut verður lögð stendur skipulagningu Samskipa og Eimskips til lengri tíma fyrir þrifum.

Fjárfestingar félaganna eru miðaðar við allt að 40-50 ára framtíðarsýn, að því er fram kemur í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag.

Samskip eru í erfiðari stöðu en Eimskip þar eð meginstarfsemi félagsins er öll fyrir innan fyrirhugaða Sundabraut. Auk þess er athafnasvæði Samskipa minna en Eimskips og stækkunarmöguleikar takmarkaðir.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert