Fimm pálmatré í Laugardal

Markmiðið með gróðursetningu pálmatrjánna er að kanna hvernig plönturnar dafna …
Markmiðið með gróðursetningu pálmatrjánna er að kanna hvernig plönturnar dafna í íslenskri veðráttu. Ljósmynd/Reykjavíkurborg

Fimm pálmatré hafa verið gróðursett í Laugardalnum af garðyrkjufræðingum borgarinnar. Markmiðið er að kanna hvernig þessar plöntur dafna í íslenskri veðráttu, að því er fram kemur í frétt á vef Reykjavíkurborgar.

Pálmatrén voru sett niður í góðu skjóli við Sunnuveg og verður vel fylgst með því hvernig þau pluma sig næsta vetur, en þau eru af sérstöku yrki frá Himalayafjöllum. Guðlaug Guðjónsdóttir og Hannes Þór Hafsteinsson garðyrkjufræðingar áttu frumkvæði að þessari tilraun og hafa umsjón með nýju plöntunum. 

Í tilkynningu borgarinnar er ekki minnst á möguleg tengsl tilraunarinnar við áform meirihlutans um að setja upp lista­verk í formi tveggja pálma­trjáa í gler­hjúp­um í Voga­byggð. Áætlaður kostnaður við verkið er 140 millj­ón­ir króna. 

Í frétt borgarinnar segir að tilgangurinn sé að auka við flóruna og „prófa sig áfram með aukinni fjölbreytni í gróðri í borgarlandinu“. Þá segir að gaman verði að fylgjast með því hvernig pálmatrén þrífist í reykvískum vetri en búið verður vel um þau þegar kólna fer. 

Pálma­tré, til­laga þýska lista­manns­ins Kar­in Sand­er, bar sig­ur úr být­um …
Pálma­tré, til­laga þýska lista­manns­ins Kar­in Sand­er, bar sig­ur úr být­um í sam­keppn­inni um útil­ista­verk í Voga­byggð. Verkið ger­ir ráð fyr­ir að tveim­ur pálma­trjám sé komið fyr­ir í stór­um turn­laga gróður­hús­um og að frá þeim stafi ljós og hlýja. Tölvuteikning
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert