Skoska leiðin strax á næsta ári

Flugvöllurinn á Egilsstöðum.
Flugvöllurinn á Egilsstöðum. Ljósmynd/Sigurður Aðalsteinson

Bæjarráð Fljótsdalshéraðs hvetur samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra til að sjá til þess að skoska leiðin svokallaða komist til framkvæmda hér á landi strax í byrjun næsta árs líkt og kveðið er á um í samgönguáætlun sem var samþykkt á Alþingi í febrúar.

Fram kemur í tillögu bæjaráðs að Fljótsdalshérað og samtök sveitarfélaga á Austurlandi hafi ítrekað lagt á það áherslu að skilgreina þurfi innanlandsflug sem almenningssamgöngur og að flugfargjöld verði þannig að íbúar úti á landi geti nýtt sér þjónustuna sem er í boði.

„Verðlagning eins og hún er í dag er hins vegar þess eðlis að hún stendur eðlilegri nýtingu íbúa á þessari þjónustu fyrir þrifum og þar með aðgengi þeirra að nauðsynlegri grunn- og sérfræðiþjónustu sem að mestu er staðsett á höfuðborgarsvæðinu og rýrir þar með landshlutann sem búsetukost,” segir í fundargerð, þar sem fram kemur að tillagan um að hvetja ráðherra vegna skosku leiðarinnar hafi verið samþykkt samhljóða.

Markmið skosku leiðarinnar er að auka aðgengi að flugþjónustu á viðráðanlegu verði frá jaðarbyggðum Skotlands. Það er gert með því að ríkið greiði fyrir afslátt sem nemur helming farmiðans til þeirra sem búa á jaðarsvæðum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert