Katrín fjallaði um lífskjarasamninginn

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, ávarpaði ársþing norrænu verkalýðshreyfinganna í Malmö í …
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, ávarpaði ársþing norrænu verkalýðshreyfinganna í Malmö í Svíþjóð síðdegis í dag. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra ávarpaði ársþing norrænu verkalýðshreyfinganna í Malmö í Svíþjóð síðdegis í dag. Hún fjallaði meðal annars um aðgerðir ríkisstjórnarinnar í tengslum við lífskjarasamningana og nauðsyn þess að félagslegur og efnahagslegur stöðugleiki fari saman.

Hún gerði einnig að umtalsefni sínu „áskoranir tengdar loftslagsbreytingum og nauðsyn þess að stjórnvöld vinni með verkalýðshreyfingunni að aðgerðum til að berjast gegn hamfarahlýnun. Að lokum fjallaði ráðherra einnig um kynjajafnrétti á vinnumarkaði og áhrif fjórðu iðnbyltingarinnar á starfsumhverfi okkar allra“. Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins

Í fyrramálið fundar forsætisráðherra með forsvarsmönnum norrænu verkalýðshreyfinganna. Ísland leiðir norrænt samstarf hreyfinganna í ár og er það Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, sem er í forsvari fyrir hönd íslensku verkalýðshreyfingarinnar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert