Píratar missa fylgi en Samfylking bætir við sig

Fylgi Pírata minnkar í nýjasta Þjóðarpúlsi Gallup.
Fylgi Pírata minnkar í nýjasta Þjóðarpúlsi Gallup. mbl.is/​Hari

Ef gengið yrði til kosninga til Alþingis í dag segjast ríflega 9% þeirra sem taka afstöðu myndu kjósa Pírata. Fylgi þeirra minnkar um rösklega þrjú prósentustig frá síðustu mælingu. Þetta kemur fram í nýjum þjóðpúlsi Gallup

Fylgi Samfylkingarinnar eykst um nær tvö prósentustig milli mælinga en tæplega 16% segjast myndu kjósa flokkinn nú. Fylgi annarra flokka breytist lítið milli mánaða, eða um 0,1-1,2 prósentustig og eru breytingarnar ekki tölfræðilega marktækar.

Nær 22% segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn, rúmlega 13% Miðflokkinn, næstum 13% Vinstri-græn, rösklega 11% Viðreisn, ríflega 8% Framsóknarflokkinn, um 4% Flokk fólksins og nær sama hlutfall Sósíalistaflokk Íslands.

Næstum 11% segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa og sama hlutfall tekur ekki afstöðu eða neitar að gefa hana upp. Um helmingur þeirra sem taka afstöðu segist styðja ríkisstjórnina. 

Niðurstöðurnar eru úr netkönnun sem Gallup gerði dagana 29. júlí til 1. september 2019. Heildarúrtaksstærð var 8.423 og þátttökuhlutfall var 47,2%. Vikmörk á fylgi við flokka eru 0,2-1,4%. Einstaklingar í úrtaki voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert