Þingmaður hótar stjórnarslitum

Jón Gunnarsson er þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Jón Gunnarsson er þingmaður Sjálfstæðisflokksins. mbl.is/​Hari

„Ég get ekki séð að við þingmenn Sjálfstæðisflokksins getum stutt stjórnarsamstarf sem fer fram með þessum hætti. Það er best að gera grein fyrir því strax,“ segir Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fv. ráðherra, í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag.

Tilefni þessara ummæla er verklag umhverfisráðherra þegar kemur að friðlýsingum. „Aðferðafræði hans stenst að mínu mati enga skoðun og hafa margir hagsmunaaðilar fullyrt að ekki sé farið að lögum í þeirri útfærslu sem hann boðar. Ég er sammála því að verklag hans samræmist ekki lögum.“ 

Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfisráðherra við Stjórnarráðið.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfisráðherra við Stjórnarráðið. mbl.is/​Hari

„Skýrt dæmi um hvernig aðferðafræði ráðherrans mun virka í raun er t.d. að ef engin virkjun væri í dag til staðar í Þjórsá og Alþingi hefði ákveðið að setja virkjunarkostinn Urriðafoss í verndarflokk myndi ráðherrann friða allt vatnasvæði Þjórsár frá jökli til ósa þannig að engin virkjun yrði reist við Þjórsá. Þetta er galin leið og gengur ekki upp,“ segir Jón meðal annars í grein sinni en hana er hægt að lesa í heild í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert