Rafrettuvökvinn Nasty Ballin innkallaður

Ástæða innköllunar er sú að það er ekki barnalæsing á …
Ástæða innköllunar er sú að það er ekki barnalæsing á loki á vökvans. Þar af leiðandi eiga börn auðvelt með að opna vökvann, sem er í litríkum flöskum. Ljósmynd/Neytendastofa

Neytendastofu hefur borist tilkynning um innköllun rafrettuvökva sem seldur var í verslun Póló á Bústaðavegi. Vökvinn heitir Nasty Ballin og er frá framleiðandanum Nasty Juice. Barnalæsingu vantar á lok vökvans og því var varan innkölluð. 

Póló hvetur viðskiptavini sem hafa keypt Nasty Ballin til að hætta notkun á honum og skila honum, gegn kvittun, í verslunina og fá nýjan vökva eða fá hann endurgreiddan.

Neytendastofa vill árétta að rafrettuvökvar verða að vera með loki með barnalæsingu og umbúðirnar mega ekki hafa texta eða myndir sem höfða til barna eða ungmenna.

Þá má ekki heldur selja eða afhenda börnum rafrettur eða áfyllingar. Ef það er vafi á um aldur kaupanda rafrettna eða áfyllinga á að biðja hann um skilríki sem sýna fram á að hann sé 18 ára. Þeir einir sem orðnir eru 18 ára mega selja rafrettur og áfyllingar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert