Tyrkir hætti hernaði í Sýrlandi

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra.
Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Íslensk stjórnvöld gagnrýna harðlega hernaðaraðgerðir Tyrkja gegn Kúrdum í Sýrlandi og hafa komið þeirri afstöðu sinni á framfæri við tyrknesk yfirvöld með formlegum hætti. Hernaðaraðgerðirnar samræmast ekki alþjóðalögum og er þess krafist að Tyrkir hætti aðgerðunum þegar í stað og fylgi alþjóðalögum í hvívetna.

Þetta kemur fram í yfirlýsingu á vef utanríkisráðuneytisins.

Þar segir að hernaður sem beinist að almennum borgurum og valdi manntjóni, eins og fregnir hermi, sé fordæmdur. Stjórnvöld leggi áherslu á að hernaðaraðgerðum verði hætt.

Íslensk stjórnvöld hafa þungar áhyggjur af því að yfirstandandi hernaðaraðgerðir Tyrkja magni enn frekar ófriðarbálið á svæðinu og geri að engu þann árangur sem náðst hefur í baráttunni gegn hryðjuverkasamtökunum sem kenna sig við íslamskt ríki,“ kemur enn fremur fram.

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra sendi frá sér yfirlýsingu á Twitter í gær þar sem hann lýsti miklum áhyggjum af hernaðaraðgerðum Tyrklandsstjórnar gegn Kúrdum á sýrlensku yfirráðasvæði og kallaði eftir vopnahléi á svæðinu. Þá hafi afstaða ríkisstjórnarinnar til aðgerðanna komið fram á Alþingi og í fjölmiðlum undanfarna daga.

„Tyrkir hafa sannarlega tekið á móti miklum fjölda flóttamanna frá Sýrlandi en það er skýr afstaða íslenskra stjórnvalda að aðgerðir sem þessar séu síst til þess fallnar að skapa aðstæður til að flóttafólk geti snúið aftur til síns heima, enda líklegt að þær stuðli fremur að áframhaldandi átökum en varanlegum friði.“

Tyrkneski herinn hefur ráðist inn í Sýrland.
Tyrkneski herinn hefur ráðist inn í Sýrland. AFP
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert