Íslensk lausn um velferð barna hlaut verðlaun UNICEF

Hjördís Eva Þórðardóttir, frá UNICEF á Íslandi, Anna Elísabet Ólafsdóttir, …
Hjördís Eva Þórðardóttir, frá UNICEF á Íslandi, Anna Elísabet Ólafsdóttir, verkefnastjóri innleiðingar Barnasáttmála SÞ hjá Kópavogsbæ, Páll Magnússon, bæjarritari Kópavogs, Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra og Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri Kópavogs tók við verðlaununum í Köln. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Mælaborð sem ætlað er að tryggja betri yfirsýn yfir velferð barna á Íslandi vann í dag alþjóðleg verðlauna UNICEF (Child Friendly Cities Initiative Inspire Awards) fyrir framúrskarandi lausnir og nýsköpun í nærumhverfi barna. Verðlaunin voru afhent í Köln í Þýskalandi þar sem stór ráðstefna um innleiðingu barnasáttmálans í sveitarfélögum er haldin.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu á vef Stjórnarráðsins.

Mælaborðið hefur verið þróað af Kópavogsbæ í samvinnu við félagsmálaráðuneytið og UNICEF á Íslandi. Samstarfssamningur þess efnis var undirritaður í júní síðastliðnum og er hluti af heildarendurskoðun á þjónustu við börn og ungmenni sem stjórnvöld standa fyrir.

Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri Kópavogs, tók við verðlaununum í Köln. Á morgun tekur Ásmundur þátt í pallborðsumræðum á ráðstefnunni þar sem hann mun fjalla um áherslur íslenskra stjórnvalda um velferð barna.

Safnar og greinir tölfræðigögn

Mælaborðinu er ætlað að safna og greina tölfræðigögn í þeim tilgangi að fá fram betri mynd af almennri stöðu barna í samfélaginu hverju sinni og beina sjónum stjórnvalda að verkefnum sem brýnt er að takast á við og forgangsraða.

Fyrstu drög að mælaborðinu voru kynnt á ráðstefnunni Breytingar í þágu barna sem haldin var á vegum félags- og barnamálaráðherra í byrjun þessa mánaðar. Þar kom fram að með mælaborðinu megi tryggja rétta stýringu aðgerða í þágu barna og þar með betri nýtingu fjármuna.

„Sýnir að við erum á réttri leið“

„Ég hef haft sterka sannfæringu fyrir því að með breyttum vinnubrögðum og aukinni samvinnu getum við náð fram byltingu þegar kemur að málefnum barna á Íslandi. Það er mjög ánægjulegt að eitt af þeim samvinnuverkefnum sem lögð hefur verið áhersla á í þessari vegferð sé að fá stóra alþjóðlega viðurkenningu. Það gefur okkur byr í seglin og sýnir að við erum á réttri leið,” er haft eftir Ásmund Einari í tilkynningu.

„Mælaborð barna er verkefni sem við erum gríðarlega stolt af hjá Kópavogsbæ og mjög ánægjulegt að það hljóti alþjóðlega viðurkenningu UNICEF. Kópavogsbær hefur lagt áherslu á málefni barna og barnaverndar og vinnur nú að innleiðingu Barnasáttmála SÞ hjá bænum. Mælaborðið er hluti af þeirri innleiðingu og frábært að fá verðlaun sem öðrum þræði eru viðurkenning á metnaðarfullri innleiðingu hans. Markmiðið með mælaborðinu er að við getum forgangsraðað enn betur í þágu barna og vonandi mun það nýtast sem víðast, innanlands sem utan,“ er haft eftir Ármanni Kr. Ólafssyni, bæjarstjóra Kópavogs.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert