Vill reglur um rafhlaupahjól

Jón Magnús Kristjánsson, yfirlæknir bráðalækninga á Landspítalanum.
Jón Magnús Kristjánsson, yfirlæknir bráðalækninga á Landspítalanum. mbl.is/Sigurður Bogi

„Skurðir og mar. Já, og einnig beinbrot.“ Þessu svarar Jón Magnús Kristjánsson, yfirlæknir bráðalækninga á Landspítalanum, spurður hvort á spítalann leiti fólk sem slasist á rafhlaupahjólum og um hvernig slys sé að ræða. Hann bætir við að ekki sé um mjög alvarleg slys að ræða. 

Jón Magnús hefur fylgst með umræðunni í Danmörku þar sem nú er lagt til að tekin verði upp hjálmaskylda og hraðatakmarkanir á hlaupahjólin, en þar í landi hafa orðið nokkur alvarleg slys á þeim. Í dag fundar samgönguráðherra Danmerkur um málið með fulltrúum sveitarfélaganna.

„Við höfum séð fáein slys,“ segir Jón sem segir að fjöldi þessara slysa hafi ekki verið tekinn sérstaklega saman í skrám spítalans. Hann segist sammála þeim dönsku kollegum sínum sem hann hefur rætt við um að setja þurfi reglur um rafhlaupahjól. 

Á hlaupahjóli á góðum degi.
Á hlaupahjóli á góðum degi. mbl.is/​Hari

„Að mínu mati ættu að gilda sömu reglur um þessi hjól og önnur farartæki í umferðinni sem komast jafn hratt, eins og t.d. rafmagnsvespur og mér  finnst fyllsta tilefni til að fylgjast betur með þessu. Við hvetjum eindregið til að notaðir séu hjálmar á þessum farartækjum og að sjálfsögðu er það skylda fyrir börn,“ segir Jón Magnús.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert