Ferðamenn á gjörgæslu eftir bílveltu

mbl.is/Hjörtur

Þrír bandarískir ferðamenn sem lentu í bílveltu á Suðurlandsvegi í gærkvöld nærri afleggjaranum að Þrengslavegi eru allir á spítala, tveir þeirra á gjörgæslu.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu er um að ræða alvarlegt slys sem er í rannsókn. 

Lögregla hefur rætt við einn þeirra sem lenti í slysinu en segir að ekkert liggi fyrir um tildrög slyssins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert