Sjúkraflutningamenn vinna nú að því að flytja átta til tíu manns á sjúkrahús til aðhlynningar eftir að tveir bílar lentu í árekstri á Reykjanesbraut núna fyrir skemmstu. Ekki er vitað hversu alvarlega fólkið er slasað segir varðstjóri slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu í samtali við mbl.is.
Viðbúnaður á vettvangi er mjög mikill að sögn sjónarvotta. Um tíma voru þar fimm sjúkrabílar, dælubíll slökkviliðsins og lögreglubílar. Verið er að beina umferð annað á meðan vinna á vettvangi fer fram.
Miðað við lýsingar sjónarvotta bendir allt til þess að bílarnir hafi komið úr gagnstæðri átt. Bíllinn sem valt á hliðina var af tegund farþegabíla sem rúmar sjö farþega eða fleiri.
Í tilkynningu frá lögreglu vegna slyssins kemur fram að umferð verði lokað á Reykjanesbraut inn í Hafnarfjörð (austur). Umferð í hina áttina verði stjórnað fram hjá vettvangi þannig að það sé ekki alveg lokað í aðra áttina. Það megi þó búast við umferðartöfum á þessum vegkafla á meðan aðgerðir á vettvangi fara fram.