Í samræmi við skilaboð umhverfissviðs

DAgur segir að tilmæli umboðsmanns borgarbúa muni nýtast inn í …
DAgur segir að tilmæli umboðsmanns borgarbúa muni nýtast inn í vinnu sem þegar er í gangi. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Ég á von á því að umhverfis- og skipulagssvið fari bara vel yfir þetta,“ segir Dagur B. Eggertsson borgarstjóri í samtali við mbl.is um tilmæli sem umboðsmaður borgarbúa sendi Reykjavíkurborg vegna fram­kvæmda í miðborg­inni og á öðrum viðkvæm­um rekstr­ar­svæðum.

Segir Dagur að honum sýnist tilmæli umboðsmanns í samræmi við þau skilaboð sem undanfarið hafa komið frá umhverfis- og skipulagssviði varðandi úrbætur á kynningu og frágangi framkvæmdasvæða. „Þetta mun nýtast inn í vinnuna sem er í gangi.“

Spurður um þá gagnrýni sem Reykjavíkurborg hefur hlotið vegna framkvæmda í miðborginni undanfarið segir Dagur: „Það er kallað eftir því að fá lengri fyrirvara og meiri þátttöku í útfærslu varðandi tímasetningu á framkvæmdum, og það er eitt af því sem er fullur áhugi á að gera.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert