Lilja komst ekki til Berlínar

Lilja Dögg Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra hefur verið á faraldsfæti …
Lilja Dögg Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra hefur verið á faraldsfæti undanfarið, var á þingi Norðurlandaráðs í Stokkhólmi í lok október, í París síðustu helgi, átti að vera í Berlín núna, en sá að lokum að betra væri að vera heima á Íslandi, m.a. vegna anna í þinginu. Magnus Fröderberg/norden.org

Til stóð að Lilja Dögg Al­freðsdótt­ir mennta- og menn­ing­ar­málaráðherra yrði stödd í Berlín í heim­sókn í dag en heim­sókn henn­ar var af­lýst á síðustu stundu. „Það er mikið að gera í þing­inu í stórum málum sem hafa verið í undirbúningi í langan tíma, eins og Menntasjóðurinn og Menntun og hæfi,“ seg­ir ráðherra að sé ástæðan fyr­ir þeim for­föll­um, í sam­tali við mbl.is

Meðal þess sem var á dag­skrá mennta- og menn­ing­ar­málaráðherra var að von­um menn­ing; heim­sókn í ís­lenska sendi­ráðið, Þýskalandsfrumsýning myndarinnar KAF, tónleikar Sinfóníunnar í Konzerthaus Berlin; og einnig mennt­ir; heim­sókn í Hum­boldt-há­skóla, sem held­ur úti stærstu nor­rænu- og þar með ís­lensku­deild í Þýskalandi og þótt víðar í Evr­ópu væri leitað.

Íslenska ríkið fjár­magn­ar að hálfu eða heilu leyti stöður íslenskukennara við nokkra er­lenda há­skóla og til stóð að framtíð þess sam­bands við Hum­boldt-há­skóla yrði rædd í heim­sókn ráðherr­ans. Og það verður vænt­an­lega gert, þó að Lilja sjálf komi ekki, enda kem­ur sendi­nefnd á henn­ar veg­um þrátt fyr­ir for­föll henn­ar sjálfr­ar. Fund­ur fer fram síðdeg­is í há­skól­an­um um þetta mik­il­væga mál, en frá öndverðri þessari öld hefur Ísland fjármagnað hálfa stöðu kennara í Humboldt, eftir samningum til fimm ára í senn, og sem stendur eru þeir samningar lausir.

Það er ekki von nema spurt sé hvort mál­efni út­gerðarfyr­ir­tæk­is­ins Sam­herja hafi átt þátt í því að Lilja sá sér þann kost vænni að halda kyrru fyr­ir á Íslandi en sjálf seg­ir hún að svo hafi ekki verið, það sé ekki ástæðan. Ann­irn­ar í þing­inu séu ein­fald­lega svo mikl­ar, að kraft­ar henn­ar væru nauðsyn­leg­ir á Íslandi ein­mitt núna. Verið væri að vinna í frum­vörp­um ýms­um, meðal ann­ars um mennta­sjóð og hið marg­um­talaða frum­varp um styrki til fjöl­miðla.

„Framganga þingmála er í forgrunni og sendinefndin er vel mönnuð,“ seg­ir Lilja jafnframt um þessa fjarveru sína. Einnig stóð til að hún heimsótti leikhúsið Volksbühne, undirritaði samninga við Künstlerhaus Bethanien um að fjármagna þar dvöl íslenskra listamanna og svo var fyrirhugaður fundur við menntamálaráðherra Þýskalands. Óvíst er hvort allt verði þetta afgreitt af staðgenglum hennar, en meðal þeirra er Karitas H. Gunnarsdóttir, skrifstofustjóri í menntamálaráðuneytinu. Ræður Lilju, sem til stóð að hún flytti í sendi­herra­bú­staðnum í mót­töku­at­höfn í kvöld, verða lesn­ar af öðrum, og allt fer fram sem skyldi, þó að ráðherr­ann verði fjarri góðu gamni.

Síðast um miðjan október var Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra staddur …
Síðast um miðjan október var Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra staddur í íslenska sendiráðinu í Berlín, þá í tilefni 20 ára afmælis þess, hér í góðum félagsskap Heiko Maas, utanríkisráðherra Þjóðverja. mbl.is/Snorri
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert