„Alltaf leiðinlegt þegar leiðir skilja“

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Það er alltaf leiðinlegt þegar leiðir skilja. Þetta er ekki fyrsta reynslan mín af því og auðvitað virðir maður þær ákvarðanir,“ segir Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri hreyf­ing­ar­inn­ar – græns fram­boðs og forsætisráðherra, við mbl.is um úrsögn Andrésar Inga Jóns­sonar úr þing­flokknum. 

„Hann skýrir það best sjálfur,“ segir Katrín spurð hvað hafi komið til. Hún segir ákvörðunina hafi komið sér á óvart og að þingflokkurinn hafi ekki búst við henni. Hins vegar lá fyrir andstaða hans við stjórnarsamstarfið í upphafi kjörtímabilsins. „Mér finnst samstarfið innan þingflokksins hafa gengið vel þrátt fyrir þessa andstöðu,“ segir Katrín. 

Andrés grendi frá ákvörðun sinni í dag upphafi þingfundar. Hann nefndi að ákvörðunin hafi verið tekin vegna uppsafnaðra mála. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert