Gunnar Birgisson hættir sem bæjarstjóri

Gunnar I. Birgisson.
Gunnar I. Birgisson.

Gunnar Ingi Birgisson bæjarstjóri hefur ákveðið að láta af störfum fyrir Fjallabyggð af persónulegum og heilsufarslegum ástæðum frá og með 1. desember nk., að því er fram kemur í frétt á vef Fjallabyggðar. 

Gunnar tók við starfi bæjarstjóra Fjallabyggðar 29. janúar 2015. Áður var hann um árabil bæjarstjóri í Kópavogi og alþingismaður fyrir Sjálfstæðisflokkinn. 

Í fréttinni kemur fram að Gunnar þakki starfsfólki og íbúum Fjallabyggðar fyrir samstarf á síðustu árum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert