Ormalyfi blandað í kókaín

Lögreglan að störfum.
Lögreglan að störfum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Lögreglan á Vesturlandi fékk nýlega niðurstöðu frá Rannsóknarstofu í lyfja- og eiturefnafræði frá Háskóla Íslands sem efnagreindi fyrir hana hvítt duft, ætlað kókaín.

Efnið var tekið af ungum manni sem hafði verið handtekinn grunaður um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna, að því er segir á Facebook-síðu lögreglunnar.

Efnapróf bentu til þess að kókaínið væri að mestu í formi kókaínklóríðs en við greininguna kom í ljós að efnið innihélt kókaín, laktósa, fenasetín og tetramísól.

Fenasetín er hitalækkandi og verkjadeyfandi lyf sem er fyrir löngu hætt að nota hér á landi. Tetramísól er ormalyf ætlað dýrum. Þessi tvö lyf teljast ekki til ávana- og fíkniefna en þau eru án efa ekki æskileg inntöku svo ekki sé talað um þegar búið er að blanda þessu í kókaín, segir í tilkynningunni, þar sem einnig kemur fram að töluverð fjölgun hafi verið í fíkniefnamálum hjá embættinu.

„Það er ljóst að það er alls kyns „skítur“ til sölu hér á landi sem einhverjir eru tilbúnir til þess að taka inn án þess að vera með fulla vissu um hvaða efni er um að ræða.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert