Ofsaveður í vændum

Kort/Veðurstofa Íslands

Útlit er fyrir að gangi í norðanrok jafnvel ofsaveður með snjókomu á vestanverðu landinu á morgun, þriðjudag. Fólki er bent á að fylgjast vel með spám þar sem búist er við einu versta veðri vetrarins hingað til en gular viðvaranir eru í gildi víða, segir í viðvörun frá Veðurstofu Íslands.

„Á Grænlandshafi er lægð að nálgast landið og úrkomusvæði hennar gengur norðaustur yfir landið í dag. Fer því fljótlega að snjóa suðvestanlands, en síðar slydda eða rigning á þeim slóðum. Hægur vindur norðaustan til fram á kvöld, en fer þá einnig að hvessa og snjóa þar. Hlýnar nokkuð í veðri í dag.

Í nótt dregur síðan til tíðinda þegar önnur kröpp lægð sunnan úr hafi kemur upp að Austfjörðum. Lægðirnar tvær valda síðan í sameiningu ört vaxandi norðanátt á landinu. Kominn verður stormur eða rok og farið að snjóa norðan til í fyrramálið, en mun hægari vindar og bjartviðri syðra. Eftir hádegi herðir enn á norðanáttinni og bætir talsvert í snjókomu nyrðra, en hvessir einnig fyrir sunnan. Vindstyrkur getur náð ofsaveðri við norðvesturströndina á morgun og jafnvel víðar, t.d. er spáð roki í efri byggðum Reykjavíkur.

Margar gular viðvarnir vegna vinds og hríðarveðurs eru því í gildi fyrir morgundaginn og gætu sumar þeirra hækkað í appelsínugult. Óveðrið mun valda samgöngutruflunum á Norður- og Vesturlandi og valda röskun á öllum flugferðum innan- sem utanlands. Vart þarf að taka fram að ferðalög á umræddum svæðum eru ekki æskileg og fólk er hvatt til að ganga tryggilega frá híbýlum sínum og lausamunum. Byggingarverktakar ættu að koma byggingarefni og vélum í skjól og sama gildir um vörur og vélar á athafnasvæðum og höfnum. Íbúar norðan- og vestanlands ættu einnig að búa sig undir hugsanlegar rafmagnstruflanir, sem gætu haldist þar til veðrinu slotar.

Ef að líkum lætur byrjar norðanhvellurinn að ganga niður aðfaranótt miðvikudags, fyrst vestan til, en áfram herjar þó hríðarbylur á Norðaustur- og Austurlandi fram á kvöldið,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands.

Höfuðborgarsvæðið

Norðanstormur eða -rok (gult ástand)

10. des. kl. 15:00 – 11. des. kl. 09:00

Gengur í norðanstorm eða -rok, 20-28 m/s. Hvassast vestan til. Samgöngutruflanir eru líklegar á meðan veðrið gengur yfir og truflanir á flugsamgöngum. Hætt er við foktjóni og eru byggingaraðilar hvattir til að ganga vel frá framkvæmdasvæðum. Búast má við hækkandi sjávarstöðu vegna áhlaðanda og líkur á að smábátar geti laskast eða losnað frá bryggju. Fólki er bent á að ganga vel frá lausum munum og sýna varkárni.

Suðurland

Norðan- og norðvestanstormur eða -rok (gult ástand)

10. des. kl. 15:00 – 11. des. kl. 10:00

Gengur í norðan- og norðvestanstorm eða -rok, 20-28 m/s, hvassast vestan til á svæðinu. Búast má við samgöngutruflunum og lokunum á vegum. Hætta er á foktjóni og ekkert ferðaveður er á meðan viðvörunin er í gildi. Fólki er bent á að ganga frá lausum munum og sýna varkárni.

Faxaflói

Norðanrok (gult ástand)

10. des. kl. 12:00 – 11. des. kl. 09:00

Gengur í norðanrok og jafnvel ofsaveður, 20-30 m/s, hvassast á sunnanverðu Snæfellsnesi. Víðtækar samgöngutruflanir líklegar, lokanir á vegum og ekkert ferðaveður er á meðan viðvörunin er í gildi. Nauðsynlegt er að tryggja lausamuni til að fyrirbyggja foktjón og er fólki bent á að sýna varkárni. Fólk er beðið um að fylgjast vel með veðurspám.

Breiðafjörður

Norðanrok (gult ástand)

10. des. kl. 10:00 – 11. des. kl. 06:00

Útlit er fyrir norðaustan- og síðan norðanrok, jafnvel ofsaveður, (23 til 30 m/s). Líkur eru á snjókomu með vindinum og gæti skyggni og færð versnað hratt. Víðtækar samgöngutruflanir líklegar, lokanir á vegum og ekkert ferðaveður er á meðan viðvörunin er í gildi. Fólk er beðið um að fylgjast vel með veðurspám.

Vestfirðir

Norðanstórhríð (gult ástand)

10. des. kl. 05:00 – 11. des. kl. 08:00

Útlit er fyrir norðaustan- og síðan norðanrok, jafnvel ofsaveður, (23 til 32 m/s) með snjókomu eða éljum og skafrenningi. Búast má við víðtækum samgöngutruflunum og tjóni og/eða slysum ef aðgát er ekki höfð og ekkert ferðaveður er á meðan viðvörunin er í gildi. Fólk er beðið um að fylgjast vel með veðurspám.

Strandir og Norðurland vestra

Norðanhríð (gult ástand)

10. des. kl. 07:00 – 11. des. kl. 14:00

Útlit er fyrir norðaustan- og síðan norðanrok, jafnvel ofsaveður, (23 til 32 m/s) með snjókomu eða éljum og skafrenningi. Búast má við víðtækum samgöngutruflunum og tjóni og/eða slysum ef aðgát er ekki höfð og ekkert ferðaveður er á meðan viðvörunin er í gildi. Fólk er beðið um að fylgjast vel með veðurspám.

Norðurland eystra

Norðan- og norðaustanstórhríð (gult ástand)

10. des. kl. 07:00 – 11. des. kl. 17:00

Norðaustan- og síðan norðanrok (23 til 30 m/s) með snjókomu eða skafrenningi, einkum við utanverðan Eyjafjörð og á Öxnadalsheiði. Búast má við víðtækum samgöngutruflunum og tjóni og/eða slysum ef aðgát er ekki höfð og ekkert ferðaveður er á meðan viðvörunin er í gildi. Fólk er beðið um að fylgjast vel með veðurspám.

Miðhálendið

Norðanstórhríð (gult ástand)

10. des. kl. 12:00 – 11. des. kl. 23:59

Norðanstormur eða -rok, jafnvel ofsaveður (23-32 m/s) og mikil snjókoma eða skafrenningur. Ekkert ferðaveður.

Veðurspá fyrir næstu daga

Gengur í suðaustan 13-20 m/s með snjókomu í fyrstu, en síðan slyddu eða rigningu, hvassast við S-ströndina. Lengst af mun hægara NA-lands og úrkomulítið, en hvessir þar í kvöld og fer að snjóa. Lægir þá jafnframt fyrir sunnan og vestan. Hiti víða 0 til 5 stig í dag.

Vaxandi norðaustanátt í nótt, 18-25 m/s og fer að snjóa á N-verðu landinu í fyrramálið, en mun hægara og bjart syðra. Gengur í norðan 23-30 m/s á V-verðu landinu eftir hádegi, hvassast við NV-ströndina og hvessir einnig S-lands. Snjóar talsvert á N-landi og Vestfjörðum og einnig hríðarbylur á V-landi.

Áfram norðanaftakaveður á N- og V-verðu landinu annað kvöld, en mun hægara og skýjað með köflum SA til. Hiti kringum frostmark.

Á þriðjudag:
Útlit fyrir að gangi í norðanstorm eða -rok á V-verðu landinu, jafnvel ofsaveður, með snjókomu og blindbyl, einkum NV til. Mun hægari vindur A-lands og úrkomulítið þegar kemur fram á daginn. Hiti kringum frostmark.

Á miðvikudag:
Norðanhvassviðri eða -stormur með snjókomu eða skafrenningi, en bjartviðri sunnan heiða. Dregur smám saman úr vindi og ofankomu V til síðdegis. Frost 0 til 6 stig.

Á fimmtudag:
Norðanáttir með ofankomu og köldu veðri, en áfram bjart S og V til.

Á föstudag:
Norðlæg eða breytileg átt með björtu veðri og talsverðu frosti, en dálítil él úti við sjávarsíðuna.

Á laugardag og sunnudag:
Líklega köld norðaustanátt með éljum, en bjartviðri syðra.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert