Tryggja að þetta gerist ekki aftur

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Síðustu sólarhringa höfum við verið minnt á að við búum við öflug náttúruöfl. Aftakaveður hefur verið fyrir norðan og íbúar þar eru í sérstaklega erfiðri stöðu. Ég hef heyrt bæði í íbúum og sveitarstjórnarfólki og staðan er víða þung og erfið.“

Þannig hefst Facebook-færsla Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra þar sem hún fer yfir óveðrið sem gekk yfir landið í vikunni. Hún hefur boðað þjóðaröryggisráð á fund klukkan 17 í dag til að það sé upplýst um stöðu mála. 

Katrín bendir á að matur hafi skemmst í matvöruverslunum, bændur hafi víða enn ekki getað mjólkað kýr, fólki sé kalt og skemmdir hafi orðið á húsum. Á sama tíma er ljóst að allir viðbragðsaðilar hafi ekki unað sér hvíldar og unnið þrekvirki við erfiðar aðstæður.

„Á meðan allt kapp er nú lagt á skammtímaaðgerðir til að koma rafmagni aftur á svæði og tryggja örugg fjarskipti er það um leið forgangsatriði að við vinnum aðgerðaáætlun til lengri tíma. Við höfum því ákveðið að skipa hóp sem fer strax í að greina stöðuna og leggja til nauðsynlegar úrbætur til að tryggja að þetta gerist ekki aftur,“ skrifar Katrín.

Hún bætir við að hópurinn fari strax af stað með fulltrúa hennar, fjármála- og efnahagsráðherra, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Ráðherrar munu heimsækja Samhæfingarmiðstöðina í dag til að taka stöðuna.

„Við munum aldrei geta stjórnað veðrinu en við verðum að tryggja eins trausta innviði og mögulegt er.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert