Björgunarsveitir í Skagafirði fá 3,5 milljónir

Björgunarsveitarmenn að störfum í óveðrinu.
Björgunarsveitarmenn að störfum í óveðrinu. mbl.is/Kristinn Magnússon

Byggðarráð Skagafjarðar hefur ákveðið að styrkja björgunarsveitirnar þrjár í sveitarfélaginu um samtals þrjár og hálfa milljón króna.

Hver sveit fær eina milljón króna í sinn hlut og að auki fær Skagfirðingasveit hálfa milljón vegna umfangs stjórnstöðvar.

Tilefnið er gott starf björgunarsveitanna þegar óveðrið gekk yfir Skagafjörð og víðar um landið í síðustu viku. „Það er ómetanlegt fyrir sveitarfélag að eiga að sjálfboðaliðasveitir eins og björgunarsveitirnar sem á hvaða tímum og aðstæðum sem er, eru tilbúnar að fara til aðstoðar og leggja jafnvel líf og heilsu að veði,“ segir í fundargerð byggðarráðs Skagafjarðar.

Ráðið þakkar einnig íbúum sveitarfélagsins fyrir að virða viðvaranirnar sem voru gefnar út og gera viðeigandi ráðstafanir sem auðvelduðu vinnu viðbragðsaðila.

Starfsmenn RARIK vinna að viðgerðum.
Starfsmenn RARIK vinna að viðgerðum. Ljósmynd/Arnar Valdimarsson

Starfsmönnum RARIK þakkað fyrir 

Byggðaráð þakkar einnig starfsmönnum RARIK í Skagafirði fyrir ósérhlífni í þeirra störfum undanfarna daga og segir ljóst að fjölga þurfi í starfsliði RARIK á Sauðárkróki.

„Í samningi um sölu Rafveitu Sauðárkróks til RARIK voru gefin fyrirheit um fjölgun starfa og frekari innviðabyggingu sem ekki hefur gengið eftir hingað til. Þvert á móti hefur starfsfólki fækkað. Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra að óska eftir fundi með stjórn RARIK sem allra fyrst,“ segir í fundargerðinni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert