„Sumir jafna sig kannski aldrei“

Aðstæður voru afar erfiðar á Langjökli í gærkvöldi og nótt.
Aðstæður voru afar erfiðar á Langjökli í gærkvöldi og nótt. Ljósmynd/Landsbjörg

Veðrið var hreint út sagt ólýsanlegt og með ólíkindum að björgunaraðilum skyldi yfirleitt takast að athafna sig með þeim árangri að allir virðast ætla að komast heilir á húfi frá þessari þrekraun.“ Þetta skrifar Ólína Þorvarðardóttir á Facebook en hún er ein þeirra sem tóku þátt í að bjarga 39 ferðamönnum af Langjökli í nótt.

Ólína segir að nóttin hafi verið afar erfið í blindbyl undir Bláfellshálsi og Langjökli. Fólk hafi ýmist verið grafið í fönn eða skjálfandi upp við hvert annað í óupphituðum vélarvana bíl.

Ólína er félagi í björgunarsveitinni Ingunni á Laugarvatni og segir að seinlega hafi gengið að komast að ferðamönnunum. Björgunarsveitarmenn hafi þurft að skiptast á að ganga á undan bíl í miklum byl að skálanum í Geldingafelli þar sem sett var upp hjálparstöð fyrir ferðafólkið.

„Fólkið var hrakið, hrætt og þreytt. Margir með augljós einkenni ofkælingar. Til allrar hamingju var hægt að færa það úr vosklæðunum, koma því í þurra kuldagalla og gefa heita drykki áður en lengra var haldið. Síðan var haldið áfram með fólkið í fjöldahjálparstöð á Gullfossi þar sem það fékk læknisaðstoð og faglega aðhlynningu. Það ferðalag var seinlegt og erfitt enda aðstæður eins og þær verða verstar í grimmdarklóm íslenskrar vetrarveðráttu,“ skrifar Ólína.

„Ég þykist vita að það muni taka marga sem lentu í þessu langan tíma að jafna sig eftir þetta. Sumir jafna sig kannski aldrei. Sárast finn ég til með börnunum sem sannarlega óttuðust um líf sitt og höfðu ríka ástæðu til. Þetta var sannkölluð skelfingarnótt en það vakti einhver verndarhönd yfir aðgerðum á vettvangi í gær,“ skrifar Ólína.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert