Hagkvæmast að breikka frá Krýsuvík að Hvassahrauni

Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitastjórnarráðherra.
Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitastjórnarráðherra. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Nýjar forsendur á útfærslu á tvöföldun Reykjanesbrautar eru komnar fram í nýútkominni frumdragaskýrslu Vegagerðarinnar og Mannvits. Þar kemur fram að hagkvæmast er að breikka Reykjanesbrautina, frá gatnamótum við Krýsuvík að Hvassahrauni, í núverandi vegstæði, og einfalda fyrri útfærslur sem kallar jafnframt á breytt aðalskipulag. Ég mun beita mér fyrir því að aðilar vinni málið út frá þeim forsendum sem nú liggja fyrir.“

Þetta kemur fram í Facebook-færslu Sigurðar Inga Jóhannssonar, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.

Þar segist hann hafa í störfum sínum sett umferðaröryggi í forgang þegar komi að uppbyggingu í samgöngu.

Aðstæður til aksturs hafa verið erfiðar á Reykjanesbrautinni í vetrarfærðinni …
Aðstæður til aksturs hafa verið erfiðar á Reykjanesbrautinni í vetrarfærðinni undanfarið. Ljósmynd/Lögreglan

Ég fundaði í haust með fulltrúum Vegagerðarinnar og hef átt samtöl við fulltrúa Hafnafjarðabæjar og álversins í Straumsvík. Nýjar forsendur á útfærslu á tvöföldun Reykjanesbrautar eru komnar fram í nýútkominni frumdragaskýrslu Vegagerðarinnar og Mannvits,“ skrifar Sigurður Ingi og heldur áfram:

Þar kemur fram að hagkvæmast er að breikka Reykjanesbrautina, frá gatnamótum við Krýsuvík að Hvassahrauni, í núverandi vegstæði og einfalda fyrri útfærslur sem kallar jafnframt á breytt aðalskipulag. Ég mun beita mér fyrir því að aðilar vinni málið út frá þeim forsendum sem nú liggja fyrir.

Hann segir að ef farsæl lending næst verði hægt að flýta og ljúka framkvæmdum við Reykjanesbrautina frá gatnamótunum við Krýsuvík að Hvassahrauni á fyrsta tímabili samgönguáætlunar.

 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert