Kvikan talin vera á 3-5 kílómetra dýpi

Sérfræðingar meta hvort setja eigi fleiri mælitæki á fjallið Þorbjörn …
Sérfræðingar meta hvort setja eigi fleiri mælitæki á fjallið Þorbjörn í Grindavík. mbl.is/Kristinn Magnússon

Nýjustu gögn um landris og jarðskjálftavirkni við fjallið Þorbjörn á Reykjanesskaga gefa til kynna að kvikan sem um ræðir sé á 3-5 km dýpi, en dýpið var áður áætlað 3-9 km. Þetta kom fram á vísindaráðsfundi Almannavarna sem jarðvísindamenn sátu í dag. Á fundinum var einnig  farið yfir hugsanlega atburðarás sem gæti farið í gang ef til eldsumbrota kæmi.

Vísbendingar eru um breytt mynstur í jarðskorpuhreyfingum. Dregið hefur úr jarðskjálftavirkni undanfarna tvo sólarhringa, en enn má sjá merki um áframhaldandi landris en það er nú orðið 5 cm þar sem það er mest. Um er að ræða langtímaatburð og er reynslan af öðrum sambærilegum atburðum sú að breytingar geta orðið í landrisi viku frá viku án þess að hægt sé að fullyrða að virknin sé að fjara út.

Á næstu dögum verður metið hvort nauðsynlegt sé að fjölga mælitækjum til að fá betri mynd af þróun mála.

Næsti fundur vísindaráðsins verður haldinn eftir viku að öllu óbreyttu.

Fundinn sátu vísindamenn frá Veðurstofu Íslands, Jarðvísindastofnun Háskólans og ÍSOR, ásamt fulltrúum frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, HS-Orku, Umhverfisstofnun og lögreglunni á Suðurnesjum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert