Benedikt fær að áfrýja til Hæstaréttar

Benedikt Bogason og Jón Steinar Gunnlaugsson
Benedikt Bogason og Jón Steinar Gunnlaugsson Samsett mynd

Hæstiréttur hefur samþykkt umsókn Benedikts Bogasonar hæstaréttardómara um leyfi til að áfrýja dómi Landsréttar í meiðyrðamáli sínu gegn Jóni Steinari Gunnlaugssyni fyrrverandi hæstaréttardómara. Dómur Landsréttar féll í nóvember en þar var Jón Steinar sýknaður.

Í mál­inu fór Bene­dikt fram á að um­mæli í bók Jón Stein­ars í rit­inu „Með lognið í fangið - Um af­glöp Hæsta­rétt­ar eft­ir hrun“ yrðu dæmd dauð og ómerk. Þá fór dóm­ar­inn einnig fram á að fá greidd­ar tvær millj­ón­ir í miska­bæt­ur.

Byggði hann mál­sókn sína á að um­mæl­in „dóms­morð“ væru ærumeiðandi aðdrótt­an­ir eins og þau birt­ust í bók­inni og Jón Stein­ar hefði með þeim full­yrt að Bene­dikt hefði af ásetn­ingi kom­ist að rangri niður­stöðu í dóms­máli með þeim af­leiðing­um að sak­laus maður hefði verið sak­felld­ur og dæmd­ur í fang­elsi.

Í júní 2018 sýknaði Héraðsdóm­ur Reykjaness Jón Steinar sem fyrr segir og Landsréttur staðfesti þá niðurstöðu í nóvember.

Varði mörk tjáningarfrelsis og friðhelgi einkalífs

Í ákvörðun Hæstaréttar um áfrýjunarleyfið, sem mbl.is hefur undir höndum, segir m.a. að Benedikt byggi á því að úrslit málsins hafi verulegt almennt gildi meðal annars sökum þess að það varði mörk tjáningarfrelsis og friðhelgi einkalífs sem séu stjórnarskrávarin réttindi. 

Það hafi ennfremur sérstaka þýðingu að ummælin beinist að dómstörfum Benedikts og að Jón Steinar sé fyrrverandi hæstaréttardómari og starfandi lögmaður. Benedikt bendir á að ekki hafi áður reynt á sambærilegt ágreiningsefni fyrir Hæstarétti og að dómur Landsréttar taki ekki nægilega mið af dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu, en þar hafi staða þess sem lætur ummælin falla verið talin skipta máli og jafnframt að hverjum þau beinast. 

Dómari verði ekki sakaður um alvarlegri glæp í starfi sínu

Þá telur Benedikt að dómurinn gangi mun lengra en áður þekkist við túlkun á því hvað geti talist vera gildisdómur, auk þess sem ekki hafi verið tekin rökstudd afstaða til allrar málsástæðna hans. Því sé dómurinn bersýnilega rangur að formi og efni til. Ennfremur byggir Benedikt á því að málið varði jafnframt sérstaklega mikilvæga hagsmuni sína endi verði dómari ekki sakaður um alvarlegri glæp í starfi sínu en að misfara með vald sitt með því að dæma saklausan mann í fangelsi gegn betri vitund. 

Loks telur Benedikt að málsmeðferðin fyrir Landsrétti hafi verið stórlega ábótavant vegna nánar tilgreindra bréfaskipta og símtala Jóns Steinars við forseta Landsréttar, dómsformann málsins og skrifstofustjóra réttarins um skipun dómsins, sem hann hafi ekki verið upplýstur um. Jafnræðis hafi því ekki verið gætt með aðilum við málsmeðferðina og brotið gegn lögum um dómstóla um að tilviljun ráði hvaða dómari fái mál til meðferðar. 

Úrlausn málsins geti haft verulegt almennt gildi

„Að virtum gögnum málsins verður að líta svo á að dómur í máli þessu myndi hafa almennt gildi um álitefni varðandi frelsi lögmanna, og annarra sérfróðra aðila sem gegna ábyrgðarhlutverki innan réttarvörslukerfisins, til að tjá sig opinberlega um embættisverk dómara. Því getur úrlausn málsins að þessu leyti haft verulegt almennt gildi umfram úrlausnir sem áður hafa gengið. Er beiðni um áfrýjunarleyfi því tekin til greina, “ segir í ákvörðun Hæstaréttar. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert