„Ómissandi en samningslaus í skugga kórónuveirunnar“

Þá furða félögin sig á því hve lítinn samningsvilja ríkisvaldið …
Þá furða félögin sig á því hve lítinn samningsvilja ríkisvaldið hafi sýnt í viðræðum til þessa og krefjast þess að fá raunverulegt samtal við viðsemjendur. mbl.is/Kristinn Magnússon

Tilmæli landlæknis, sóttvarnalæknis og almannavarna til heilbrigðisstarfsmanna og annarra sem starfa við viðbúnað vegna kórónuveirunnar um að fresta utanlandsferðum sýna glögglega hve mikilvægir umræddir starfsmenn eru íslensku samfélagi. 

Þetta segir í yfirlýsingu frá ellefu aðildarfélögum BHM, hverra félagsmenn starfa margir innan heilbrigðiskerfisins og á öðrum mikilvægum stofnunum ríkisins. 

„Það skýtur því skökku við að nú er næstum liðið heilt ár frá því að kjarasamningar félaganna við ríkið losnuðu og enn hafa viðræður um nýja samninga engum árangri skilað. Ganga verður til samninga við félögin án tafar og aflétta þannig því viðbótarálagi á starfsfólk sem óhjákvæmilega fylgir því að vera án kjarasamninga í tæpt ár.“

Þá furða félögin sig á því hve lítinn samningsvilja ríkisvaldið hafi sýnt í viðræðum til þessa og krefjast þess að fá raunverulegt samtal við viðsemjendur, að hlustað verði á sjónarmið félaganna og komið til móts við kröfur þeirra.

Undir yfirlýsinguna skrifa Dýralæknafélag Íslands, Félag geislafræðinga, Félag íslenskra hljómlistarmanna, Félag íslenskra náttúrufræðinga, Félag lífeindafræðinga, Félagsráðgjafafélag Íslands, Iðjuþjálfafélag Íslands, Kjaraféleg viðskiptafræðinga og hagfræðinga, Ljósmæðrafélag Íslands, Sálfræðingafélag Íslands og Þroskaþjálfafélag Íslands.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert