SGS og ríkið undirrita kjarasamning

Það var glatt á hjalla í Karphúsinu.
Það var glatt á hjalla í Karphúsinu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Samninganefnd Starfsgreinasambands Íslands (SGS) skrifaði í dag undir nýjan kjarasamning fyrir hönd 18 aðildarfélaga sinna við samninganefnd ríkisins, með fyrirvara um samþykki félagsmanna í atkvæðagreiðslu.

Samningurinn gildir frá 1. apríl 2019 til 31. mars 2023. Þetta kemur fram í tilkynningu frá SGS.

Þar segir að samningurinn feli helst í sér að laun hækki í samræmi við lífskjarasamninginn og hækki frá 1. apríl 2019, að lágmarksorlof hjá öllum starfsmönnum verði 30 dagar, markviss skref til styttingar vinnuvikunnar, en frá 1. janúar 2021 styttist vinnuvikan um samtals 65 mínútur fyrir fólk í fullu starfi.

Frá samningafundi SGS og ríkisins.
Frá samningafundi SGS og ríkisins. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Manneskjulegri vaktavinnuvika

Þá verður vinnuvika vaktavinnufólks 36 stundir miðað við fullt starf og nýtt launamyndunarkerfi tekið upp, auk þess sem breytingar verða gerðar á fyrirkomulagi vaktavinnu sem bjóða upp á manneskjulegra umhverfi með styttri vinnuviku. 

Tekin verður upp ný launatafla sem byggist á álagsþrepum en ekki aldursþrepum og í tengslum við það verða stofnanasamningar endurskoðaðir og er allt að 142 milljónum ráðstafað vegna þessa.

Þá hækkar framlag í orlofssjóð og fellt verður út ákvæði um að heimilt sé að láta fólk gista í tjöldum. Loks verða persónu- og desemberuppbætur hækkaðar og upp tekið nýtt ákvæði um að félagsmenn sem hafi starfað samfellt í þrjú ár geti fengið launað leyfi í samtals þrjá mánuði til að stunda viðurkennt starfsnám.

Samningurinn verður kynntur félagsmönnum á næstu dögum og vikum en gert er ráð fyrir að atkvæðagreiðslu um hann ljúki 26. mars.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert