85 smit staðfest hér á landi

Fjögur ný til­felli af COVID-19-sjúk­dómn­um voru greind á sýkla- og veiru­fræðideild Land­spít­ala nú í morgun. Heild­ar­fjöldi til­fella er því 85.

Þetta staðfestir Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn í samtali við mbl.is.

Nýju tilfellin tengjast öll ferðalögum fólks til skíðasvæða í Ölpunum. Tvö nýju smitanna má rekja til Sviss og hin tvö til Austurríkis.

Víðir segir að hugsanlega sé hægt að tengja tvö smit sem voru staðfest í gær við Sviss.

Hann segir að verið sé að rekja smit en eitthvað á sjöunda hundrað manns er í sóttkví. Alls hafa 739 sýni verið tekin í heild.

Enginn sem smitaðist af veirunni er á sjúkrahúsi en Víðir segir að sérstaklega vel sé fylgst með nokkrum sem eru veikir heima.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert