Full laun upp að 400 þúsund krónum

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra
Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra mbl.is/Eggert Jóhannesson

Fólk sem er með tekjur undir fjögur hundruð þúsund krónum á mánuði getur fengið full laun þrátt fyrir lækkað starfshlutfall um allt að 75 prósent.

Þetta er á meðal breytinga sem hafa verið gerðar á frumvarpi félags- og barnamálaráðherra um greiðslur úr atvinnuleysistryggingasjóði vegna kórónuveirunnar, að því er kom fram í kvöldfréttum RÚV.

Samanlagðar hámarksgreiðslur frá atvinnurekanda og úr Atvinnuleysistryggingasjóði verða 700 þúsund krónur. Námsmenn geta átt rétt á atvinnuleysisbótum.

Að sögn Ásmundar getur kostnaðurinn við þessar aðgerðir orðið á bilinu 12 til 20 milljarðar króna.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert