Sendiherra ESB fór í flýti

Michael Mann.
Michael Mann. Ljósmynd/Aðsend

„Og nú kveð ég Ísland, heimili mitt síðustu tvö og hálft ár. Því miður þarf ég að fara í flýti áður en allar flugleiðir stöðvast,“ skrifar Michael Mann, sendi­herra Evr­ópu­sam­bands­ins á Íslandi, á Facebook í morgun.

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra hefur hvatt Íslendinga erlendis sem vilja snúa heim til að gera það sem fyrst. Hætta er á að flug­sam­göng­ur til lands­ins lokist um næstu mánaðamót.

Mann þakkar fyrir sig og segir Ísland fallegt land og fólkið indælt. Hér hafi hann eignast dóttur og marga góða vini.

Hann segist enn fremur snúa aftur til Íslands í framtíðinni, starfs síns vegna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert