Gagnrýnir ÍE fyrir að láta ekki vita strax

Skimanir hafa farið fram í húsnæði Íslenskrar erfðagreiningar.
Skimanir hafa farið fram í húsnæði Íslenskrar erfðagreiningar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Æskilegt hefði verið að í upphafi hafi legið fyrir að Íslensk erfðagreining ætlaði að gera vísindarannsókn á heilbrigðissviði í tengslum við kórónuveiruna.

Þetta kemur fram í afstöðu Persónuverndar vegna vísindarannsóknar á COVID-19. Málið snýst um erindi ÍE til Persónuverndar um nýtingu á niðurstöðum sýnatöku fyrirtækisins til vísindarannsóknar en leyfið var veitt í gær. Þar með get­ur ÍE birt niður­stöður skim­ana sinna fyr­ir kór­ónu­veirunni í ritrýndu vís­inda­tíma­riti.  

Vísað er til samskipta Persónuverndar, Vísindasiðanefndar og ÍE laugardaginn 7. mars og sagt að daginn áður hafði ÍE kynnt Persónuvernd og Vísindasiðanefnd þá fyrirætlun sína að skima fyrir COVID-19-veirunni. Fallist hafi verið á þetta mat ÍE í sameiginlegri yfirlýsingu Vísindasiðanefndar og Persónuverndar 8. mars.

Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreininga.r
Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreininga.r mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Kom fram af hálfu Vísindasiðanefndar, eftir samskipti við Persónuvernd, að hluti verkefnisins virtist fela í sér vísindarannsókn á heilbrigðissviði. Lýsti ÍE því þá yfir að ekki ræddi um slíka rannsókn heldur klíníska vinnu,“ segir í afstöðu Persónuverndar.

Þar segir einnig að nú hafi komið í ljós að auk klínískrar vinnu sé fyrirhuguð vísindarannsókn. „Æskilegt hefði verið að þetta hefði legið fyrir strax í upphafi, en í því sambandi má nefna að laugardaginn 7. mars 2020 lofuðu Persónuvernd og Vísindasiðanefnd ÍE flýtimeðferð þannig að málinu yrði lokið eigi síðar en þriðjudaginn 10. s.m.“ segir Persónuvernd.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert