Valgerður dregur uppsögn sína til baka

Valgerður Á. Rúnarsdóttir.
Valgerður Á. Rúnarsdóttir. mbl.is/Árni Sæberg

Valgerður Rúnarsdóttir, forstjóri Sjúkrahússins Vogs og framkvæmdastjóri lækninga, hefur dregið uppsögn sína til baka. Um leið dregur framkvæmdastjórnin til baka uppsagnir allra þeirra átta starfsmanna sem sagt var upp um síðustu mánaðamót.

Þetta kemur fram á vef SÁÁ.

„Þetta var góð niðurstaða hjá framkvæmdastjórn samtakanna,“ er haft eftir Valgerði á vef SÁÁ.

„Við hjá SÁÁ höfum mikið verk að vinna og það er hugur í starfsfólkinu sem stendur saman í þrengingunum sem eru fyrirséðar þetta árið,“ segir hún ennfremur.

Sjúkrahúsið Vogur.
Sjúkrahúsið Vogur. mbl.is/Kristinn Magnússon

Arnþór Jónsson, formaður SÁÁ, segist í tilkynningunni fagna þessari ákvörðun.

„Hún hefur nú óbundnar hendur við þær sparnaðaraðgerðir sem nauðsynlegar eru til að tryggja greiðsluhæfni félagsins,“ er haft eftir honum. 

Þá telur Arnþór að með þessari ákvörðun megi tryggja starfsfrið og áframhaldandi árangur af því frábæra meðferðarstarfi sem SÁÁ hefur skilað hingað til.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert