Laxabakki friðlýstur

Laxabakki er sambland af torfbæ og timburhúsi sem stendur föstum …
Laxabakki er sambland af torfbæ og timburhúsi sem stendur föstum fótum í innlendri byggingarhefð en sker sig jafnframt úr sem sjálfstætt verk með sterk höfundareinkenni. mbl.is/Sigurður Bogi

Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra hefur hefur samþykkt tillögu Minjastofnunar Íslands um friðlýsingu bæjarins Laxabakka, sem stendur við sunnanvert Sog í Árnessýslu skammt neðan brúarinnar við Þrastalund.

Þetta kemur fram í tilkynningu. 

Húsið átti og reisti Ósvaldur Knudsen (1899-1975) málarameistari og brautryðjandi í gerð leikinna kvikmynda og heimildamynda um íslenska náttúru. Var það var byggt sem veiði- og frístundahús en Ósvaldur hannaði og smíðaði húsið í mynd íslensks torfbæjar með tveimur misháum burstum, torfi á þaki og hlöðnum hliðarveggjum úr hraunhellum. Við árbakkann skammt frá húsinu eru leifar bátaskýlis með torfþekju sem nú er fallin, segir í tilkynningu ráðuneytisins. 

„Ég fagna því að þetta fallega og sögufræga hús fái þá viðurkenningu sem því ber. Húsið hefur mikla sérstöðu en fá torfhús með burstalagi eru enn uppistandandi á suðvesturhorni landsins,“ er haft eftir Lilju Alfreðsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra.

Laxabakki er sambland af torfbæ og timburhúsi sem stendur föstum fótum í innlendri byggingarhefð en sker sig jafnframt úr sem sjálfstætt verk með sterk höfundareinkenni. Baðstofa hússins er rétt smíðuð samkvæmt aldagamalli hefð. Færa má fyrir því rök að húsið sé seinasti hlekkurinn í óslitinni, ellefu hundruð ára þróunarsögu íslenska bæjarins. Finnski arkitektinn Alvar Aalto sótti Laxabakka heim árið 1968 og er til ljósmynd af honum við húsið ásamt Skarphéðni Jóhannssyni arkitekt. Haft var eftir Aalto að Laxabakki væri að hans mati fegursta bygging á Íslandi.

Í friðlýsingartillögu Minjastofnunar Íslands kemur fram að varðveislugildi Laxabakka sé mikið þrátt fyrir bágborið ástand hússins, og felst það gildi þess ekki síst í samspili byggingarlistar við náttúru og umhverfi, segir í tilkynningunni. 

Minjastofnun Íslands mun þinglýsa friðlýsingunni og tilkynna hlutaðeigandi aðilum um hana samkvæmt ákvæðum laga um menningarminjar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert