Framboð Guðmundar og Guðna staðfest

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, og Guðmundur Franklín Jónsson.
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, og Guðmundur Franklín Jónsson. Samsett mynd

Framboð Guðmundar Franklíns Jónssonar og Guðna Th. Jóhannessonar til kjörs forseta Íslands hefur verið staðfest yfirkjörstjórn. Þetta kemur fram í auglýsingu frá dómsmálaráðuneytinu sem birt var í Lögbirtingablaðinu í morgun.

Frestur rann út til að skila framboðum með meðmælum á föstudaginn og skiluðu þeir báðir inn gögnum þar um. Með þessu er staðfest að þessir tveir eru í framboði og að framboð þeirra hafi verið gild.

Forsetakosningar fara fram laugardaginn 27. júní.

mbl.is/Kristinn Magnússon
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert