Kom hjólandi á kjörstað

Guðni Th. hjólar á kjörstað frá Bessastöðum.
Guðni Th. hjólar á kjörstað frá Bessastöðum. mbl.is/Íris Jóhannsdóttir

Guðni Th. Jóhannesson kom hjólandi frá Bessastöðum á kjörstað í Álftanesskóla klukkan níu í morgun. Hann segir kjördaginn leggjast afar vel í sig og hvetur alla sem geta til að nýta kosningaréttinn.

„Þetta er dýrmætur réttur og ég hvet alla til að nýta hann,“ sagði Guðni.

Forsetinn fylgdi sóttvarnareglum á kjörstað af mikilli samviskusemi, og var léttur í bragði þegar mbl.is náði af honum tali.

Guðni sýnir persónuskilríki á kjörstað.
Guðni sýnir persónuskilríki á kjörstað. mbl.is/Íris Jóhannsdóttir

Engin skipulögð kosningavaka

Hann segir að fjölskyldan á Bessastöðum ætli sér að njóta dagsins í góða veðrinu, og hjálpa þeim sem þurfa hjálp við að komast á kjörstað.

„Þetta verður allt á mjög lágstemmdum nótum,“ segir Guðni, en í kvöld munu nokkrir vinir og stuðningsfólk koma saman og gera sér dagamun. „Það er engin skipulögð kosningavaka í ljósi ástandsins og þeirra hamla sem eru á mannamótum núna.“ Hann segist engu að síður vera bjartsýnn fyrir kvöldinu.

Áhyggjuefni að fólk geti ekki nýtt kosningarétt

Forsetinn segir það áhyggjuefni og álitamál að sú staða geti komið upp að fólk geti ekki nýtt sinn kosningarétt. Á þriðja hundrað manns mun ekki geta greitt atkvæði í dag vegna sóttkvíar, en Guðni segir að það sé umhugsunarefni að ekki hafi verið hugað að þessu fyrr en nú.

mbl.is/Íris Jóhannsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert