Demantshringurinn loks opnaður

Frá opnun Demantshringsins í dag.
Frá opnun Demantshringsins í dag. Pedromyndir/Axel

Opn­un­ar­hátíð Dem­ants­hrings­ins, sem fara átti fram 22. ágúst síðastliðinn, var haldin í dag á Detti­foss­vegi í ná­grenni við Húsa­vík. Full­trú­ar rík­is­stjórn­ar­inn­ar voru á ­hátíðinni sem hófst með ávarpi Katrín­ar Jak­obs­dótt­ur for­sæt­is­ráðherra.  

Sig­urður Ingi Jó­hanns­son samgöngu- og sveitastjórnarráðherra og Þór­dís Kol­brún Reyk­fjörð Gylfa­dótt­ir ferðamála-, nýsköpunar- og iðnaðarráðherra voru einnig viðstödd en ásamt Katrínu klipptu þau á á borða sem strengdur var yfir nýjan Dettifossveg milli Dettifoss og Vesturdals við Jökulsárgljúfur og opnuðu þar með Dem­ants­hring­inn með form­leg­um hætti.

Þórdís Kolbrún alsæl með borðann sem þau Sigurður klipptu.
Þórdís Kolbrún alsæl með borðann sem þau Sigurður klipptu. Pedromyndir/Axel

Demantshringurinn er stórkostlegur 250 kílómetra langur hringvegur á Norðurlandi, en þar er að finna magnaðar náttúruperlur og skemmtilega afþreyingu“, segir í tilkynningu frá Markaðsstofu Norðurlands um málið. 

„Með þessari opnun er hægt að keyra milli Húsavíkur, Goðafoss, Mývatnssveitar, Dettifoss og Ásbyrgis á bundnu slitlagi en kallað hefur verið eftir þessari samgöngubót í áraraðir. Gamli vegurinn milli Dettifoss og Ásbyrgis var torfarinn og ófær stóran hluta ársins“, segir í tilkynningu frá Stjórnarráðinu um málið. 

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, var ánægð með daginn. „Demantshringurinn gerir okkur kleift að heimsækja fjöldamargar náttúruperlur á einum degi og mun opna norðausturhornið enn betur fyrir innlendum og erlendum gestum. Það var stórkostlegt að heimsækja Dettifoss í dag en þessi samgöngubót mun verða til þess að fleiri munu heimsækja hann og aðra stórkostlega staði í þessum landshluta“, er haft eftir Katrínu í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert