Orkuskipti rædd á opnum ársfundi

Lovísa Árnadóttir, upplýsingafulltrúi Samorku.
Lovísa Árnadóttir, upplýsingafulltrúi Samorku.

Á opnum ársfundi Samorku í dag verður fjallað um orkuskipti í samgöngum; hvað þarf til svo Ísland standist Parísarsamning um minnkun útblásturs frá samgöngum um 37% miðað við 2018?

Orku- og veitu­fyr­ir­tæki lands­ins hafa unnið að und­ir­bún­ingi orku­skipta um þó nokk­urt skeið og hafa meðal ann­ars, á vett­vangi Samorku, staðið fyr­ir grein­ing­um og rann­sókn­um til að skoða hvaða áhrif um­fangs­mik­il orku­skipti koma til með að hafa á raf­orku­innviði lands­ins.

Í dag kynn­ir Samorka niður­stöður nýrr­ar grein­ing­ar um orku- og aflþörf fyr­ir orku­skipti í sam­göng­um á Íslandi fyr­ir árið 2030. Niður­stöðurn­ar byggj­ast meðal ann­ars á nýrri rann­sókn um hleðslu raf­bíla, sem gerð var með þátt­töku 200 raf­bíla­eig­enda um allt land, sem stóð yfir í heilt ár, og gefa mik­il­væg­ar upp­lýs­ing­ar um við hverju megi bú­ast þegar raf­bíl­um fjölg­ar til muna með til­heyr­andi álagi á raf­orku­fram­leiðslu-, flutn­ings- og dreifi­kerfi lands­ins.

Auk þess að greina hvað þurfi til fyr­ir þau op­in­beru mark­mið stjórn­valda um orku­skipti í sam­göng­um sem fel­ast í Par­ís­ar­samn­ingn­um var einnig skoðað hvað þyrfti til ef ákveðið væri að hætta al­farið að nota jarðefna­eldsneyti árið 2030. 

Hægt er að fylgjast með fundinum í beinu streymi hér.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert