Staðan svipuð og í Bretlandi

Ef horft er til fjölda smita á hverja 100 þúsund íbúa í Evrópu undanfarnar tvær vikur er staðan svipuð á Íslandi og Bretlandi. Bæði löndin eru með rúmlega 250 smit á hverja 100 þúsund íbúa. Ísland er eina norræna ríkið sem er með meira en 100 smit á hverja 100 þúsund íbúa. 

Smitstaðan samkvæmt Sóttvarnastofnun Evrópu:

  1. Tékkland 493,1.
  2. Belgía 402,5.
  3. Holland 364,2.
  4. Spánn 308,1.
  5. Frakkland 293,1.
  6. Bretland 253,2.
  7. Ísland 252,9.

Ef tölurnar annars staðar á Norðurlöndunum eru skoðaðar þá sést að Danmörk kemur næst á eftir Íslandi með 99,6 smit á hverja 100 þúsund íbúa síðustu tvær vikurnar og Svíþjóð með 72,5. Í Finnlandi og Noregi eru smitin rúmlega 34 talsins. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert