Vilja lækka kosningaaldur í 16 ár

Andrés Ingi Jónsson.
Andrés Ingi Jónsson. mbl.is/Arnþór

Frumvarp um lækkun kosningaaldurs í 16 ár hefur verið lagt fram á Alþingi. Andrés Ingi Jónsson er fyrsti flutningsmaður málsins, en auk hans flytja málið tíu þingmenn úr Viðreisn, Pírötum, Samfylkingu og þingmaður utan flokka.

Í tilkynningu frá Andrési kemur fram að málið hafi verið til umræðu á vettvangi Alþingis sl. 13 ár, frá því að Hlynur Hallsson og Kolbrún Halldórsdóttir lögðu fram tillögu þess efnis og síðan hafa frumvörp sem miða að lækkun kosningaaldurs verið lögð fram í ólíkum myndum en ekki náð fram að ganga.

Þetta skiptið er lagt til að breytingar verði gerðar á stjórnarskrá, sem hefði áhrif á kosningaaldur í öllum kosningum, en síðast þegar sambærilegt mál var lagt fram snéri það eingöngu að sveitarstjórnarkosningum, segir í tilkynningunni frá Andrési.

Frumvarpið er hugsað til að styrkja lýðræðið með því að bregðast við aukinni kröfu ungs fólks um að hafa tækifæri til að taka virkan þátt í mótun samfélagsins. Rödd ungu kynslóðarinnar er sjálfsagður og ómissandi þáttur í því að bæta lífið í landinu, og með lækkun kosningaaldurs getur stærri hópur ungs fólks haft bein áhrif gegnum kosningar. Þetta myndi jafnframt auðga stjórnmálin með nýjum hugmyndum um leið og þjóðin er að eldast.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert