Landsmönnum fjölgaði um 1.320

Alls bjuggu 368.010 manns á Íslandi, 188.790 karlar og 179.220 konur, í lok september. Landsmönnum fjölgaði um 1.320 á þriðja ársfjórðungi eða um 0,4%. Á höfuðborgarsvæðinu bjuggu 235.870 manns en 132.140 utan þess. Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands.

Alls fæddust 1.280 börn á þriðja ársfjórðungi 2020, en 520 einstaklingar létust. Á sama tíma fluttust 550 einstaklingar til landsins umfram brottflutta. Aðfluttir einstaklingar með íslenskt ríkisfang voru 150 umfram brottflutta og aðfluttir erlendir ríkisborgarar voru 410 fleiri en þeir sem fluttust frá landinu. Fleiri karlar en konur fluttust frá landinu.

Flestir erlendir ríkisborgarar fluttust til Póllands

Danmörk var helsti áfangastaður brottfluttra íslenskra ríkisborgara en þangað fluttust 420 manns á þriðja ársfjórðungi. Til Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar fluttust 730 íslenskir ríkisborgarar af 960 alls. Af þeim 2.040 erlendu ríkisborgurum sem fluttust frá landinu fóru flestir til Póllands eða 650 manns.

Flestir aðfluttir íslenskir ríkisborgarar komu frá Danmörku (270), Noregi (140) og Svíþjóð (190), samtals 610 manns af 1.110. Pólland var upprunaland flestra erlendra ríkisborgara en þaðan fluttust 630 til landsins af alls 2.440 erlendum innflytjendum. Litháen kom næst, en þaðan fluttust 190 erlendir ríkisborgarar til landsins. Í lok þriðja ársfjórðungs bjuggu 51.120 erlendir ríkisborgarar á Íslandi eða 13,9% af heildarmannfjölda.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert